Þeir Post-Covid sjúklingar sem mögulega eru með ME/Síþreytu, geta náð auknum lífsgæðum og dregið úr hættunni á kasti með því að læra um og tileinka sér virkniaðlögun, í bók sem að ME félagið hefur gefið út og er fáanleg á heimasíðu félagsins.
Hér er tengill á sölusíðuna.
Hér er tengill á heimasíðu ME félagsins
Hér er tengill á Facebooksíðu ME félagsins
30 á biðlista eftir endurhæfingu vegna eftirkasta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.9.2020 | 11:26
Lífið með ME sjúkdómnum.
Það er erfitt fyrir fólk að veikjast af ME sjúkdómnum en það eru ýmis úrræði til að læra að lifa með sjúkdómnum og ná fram betri lífsgæðum.
Sú fræðsla er almennt ekki í boði í heilbrigðiskerfinu. Heilbrigðisráðherra hefur gefið fyrirmæli um að allir sjúklingar eigi að fá sjúkdómsgreiningu og alla þjónustu í heilsugæslunni en heilsugæslan þekkir ekki ME sjúkdóminn og ME sjúklingarnir lenda oft í því að fá þar rangar greiningar og meðferðir.
Rangar greiningar og meðferðir valda ME sjúklingum oft auknum veikindum sem geta leitt til aukinnar fötlunar.
ME félagið sendi bréf í maí sl. til heibrigðisráðherra, velferðarráðherra og þingmanna heilbrigðisnefndar alþingis - með ákalli um úrbætur en þetta fólk hefur ekki svarað bréfinu.
Fyrrum Covid-19 sjúklingum sem upplifa örmögnun og heilaþoku hálfu ári eftir að þeir hafa veikst af Covid-19, er velkomið að hafa samband við ME félagið í tölvupóstnetfanginu mefelag@gmail.com
Hægt er að biðja um símaráðgjöf.
Upplýsingar um ME félagið eru á heimasíðu félagsins
Ofsaþreyta og orkuleysi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 17.9.2020 kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)